Boðað til fundar um nýja velferðarstefnu

Velferð

""

Ný velferðarstefna verður til umræðu á velferðarkaffi næsta föstudagsmorgun en svo nefnast opnir fundir velferðarráðs sem haldnir eru með reglubundnum hætti og fjalla um velferðarmál.  

Undanfarna mánuði hefur ný velferðarstefna verið í mótun. Hún er hugsuð sem vegvísir fyrir borgarbúa og starfsfólk sem veitir þjónustuna. Markmið hennar er að auka lífsgæði fólks og tryggja að Reykjavík sé fyrir okkur öll. Það er velferðarsvið Reykjavíkurborgar sem sér um framkvæmd velferðarþjónustu en hún er meðal annars veitt með viðtölum, félagslegri ráðgjöf, á félagsmiðstöðvum, í skammtímadvölum, íbúðakjörnum, neyðarskýlum og heimahúsum.

Velferðarkaffið á föstudag er kjörið tækifæri til að fá innsýn í þá vinnu sem á undan er gengin og helstu þætti nýrrar velferðarstefnu. Stór hópur fólks komið að mótun stefnunnar með einum eða öðrum hætti, þar á meðal starfsfólk velferðarsviðs, notendur velferðarþjónustu, kjörnir fulltrúar og fulltrúar hagsmunahópa. Kjarninn í stefnunni er að engir tveir einstaklingar eru eins en það á að vera grundvallarnálgun í velferðarþjónustu borgarinnar. 

Dagskrá:

1. Velferðarstefna og helstu þættir hennar

Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs

2. Stefnuáherslur og mikilvægi þeirra

Ásta Þórdís Skjalddal, samhæfingarstjóri Pepp á Íslandi

Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs

Elín Oddný Sigurðardóttir, borgarfulltrúi

Bergþór Heimir Þórðarson, varaformaður ÖBÍ

Egill Þór Jónsson, borgarfulltrúi

Sigþrúður Erla Arnardóttir, framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða

3. Samráðsgátt og umsagnir

Dís Sigurgeirsdóttir, skrifstofustjóri á velferðarsviði

4. Umræður

Hægt er að skoða drögin að velferðarstefnunni í heild sinni hér.  

Gera má athugasemd við velferðarstefnuna á Betri Reykjavík

Viðburðurinn hefst klukkan 8.45 og lýkur klukkan 10. Honum verður streymt beint á Facebook-síðu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Hægt verður að senda inn spurningar í athugasemdum við streymið.