Barnavernd á tímum Covid

Velferð Skóli og frístund

""

Náum áttum, samstarfshópur um fræðslu og forvarnarmál, heldur Zoom fund um barnavernd á tímum Covid miðvikudaginn 14. apríl n.k.  frá kl 8:30-10:00. 

Á fundinum verður m.a. rætt um tilkynningar til Barnaverndar og hvernig hægt er að vinna með vandann í samþættri þjónustu við barnafjölskyldur og í samstarfi við skóla.

Dagskrá er sem hér segir;

  • Tilkynningar á tímum Covid, tíðni og tegundir, Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi og sérfræðingur Ráðgjafar og fræðslusviðs Barnarverndarstofu.
  • Stigskipt og samþætt þjónusta fyrir barnafjölskyldur, Hulda Björk Finnsdóttir, verkefnastjóri Brúarinnar í Hafnarfirði segir frá.
  • Reynsla fólks á verkeferlum Brúarinnar. Karen Víðisdóttir, sérkennslustjóri á leikskólanum Vesturkot og Stefanía Ólafsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu Víðstaðaskóla fjalla um málið.

Tengill á fundinn verður sendur til þeirra sem skrá sig tímanlega á naumattum.is. Þeir sem ekki hafa notað Zoom áður geta kynnt sér kerfið á zoom.us.

Öll velkomin að taka þátt í fundinum.

Auglýsing fundarins