Til að sporna við hraðri útbreiðslu Covid-19 smita gefur heilbrigðisráðuneytið út reglugerð með hertum aðgerðum. Reglugerðin tekur gildi á miðnætti í kvöld, gildir í þrjár vikur og hefur nokkur áhrif á starfsemi borgarinnar.
Megininntak hertra takmarkana er að almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns (börn ekki undanskilin) og nándarregla tveir metrar í stað eins með ákveðnum undantekningum. Stöðum með vínveitingaleyfi ber að loka kl. 21 og sund- og baðstöðum, líkamsræktarstöðvum og skíðasvæðum verður heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda. Hraðprófsviðburðir verða takmarkaðir við 200 manns og hvatt verður til fjarvinnu á vinnustöðum eins og kostur er.
Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar starfar nú á hættustigi og eru leiðbeiningar frá borginni gefnar út í samræmi við gildandi almannavarnastig og takmarkanir sem stjórnvöld hafa gefið út. Meginsjónarmiðin eru að halda úti þjónustu eins lítið skertri og hægt er en viðhafa eðlilegar smitvarnir í samræmi við leiðbeiningar landlæknis.
Ýmis þjónusta Reykjavíkurborgar
- Borgarsögusafn Reykjavíkur er komið í jólabúning og býður gesti velkomna. Farið er að öllum reglum og vegna sóttvarnatakmarkana verður engin skipulögð jóladagskrá. Opnunartímar allra fimm safna Borgarsögusafns yfir jól og áramót.
- Sund- og baðstaðir verða opnir en mega taka á móti 50% af hámarksfjölda gesta. Opnunartímar sundlauga Reykjavíkurborgar. Opnunartímar og aðrar upplýsingar um Ylströndina í Nauthólsvík.
- Skíðasvæðum er heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda gesta. Þessa dagana er opið í Bláfjöllum þegar aðstæður leyfa en nýja reglugerðin felur í sér að grímuskylda er í röðum og stólalyftu og veitingasala verður lokuð. Upplýsingar um skíðasvæðin og áhrif reglugerðar þar.
- Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, sem breytt hefur verið í sannkallaðan jólagarð er opinn, en með fjöldatakmörkunum og minnt er á tveggja metra reglu á milli óskyldra hópa. Opnunartími og aðrar frekari upplýsingar um garðinn.
- Minnt er á að vanda þarf frágang á sorpi við heimili vegna sóttvarna. Upplýsingar um sorphirðu í Reykjavík um jóla og áramót 2021.
Þjónusta velferðarsviðs
Allt kapp er lagt á að halda úti óskertri þjónustu á starfsstöðum velferðarsviðs. Fengist hafa undanþágur á tuttugu manna fjöldatakmörkunum í húsnæði fyrir fatlað fólk, í þjónustuíbúðum, dagdvöl og á vinnu- og virknimiðuðum starfsstöðum, sem auðveldar það til muna. Á þeim gildir hins vegar eins og annars staðar tveggja metra regla og að nota skal grímu ef ekki er hægt að virða hana.
Þjónustumiðstöðvar velferðarsviðs eru opnar. Þó er ástæða til að takmarka umferð um þjónustuskála miðstöðvanna eins og kostur er. Fólki er því bent á að nýta símtöl og tölvupóst til að panta viðtöl eða boða komu sína ef hægt er, frekar en að koma á staðinn.
Þjónustumiðstöðvar velferðarsviðs eru eftirtaldar:
- Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts. Hraunbær 115, 110 Reykjavík, sími 411 1200, netfang: arbaer-grafarholt@reykjavik.is.
- Þjónustumiðstöð Breiðholts. Álfabakka 10, 109 Reykjavík, sími 411 1300, netfang: breidholt@reykjavik.is.
- Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness – Miðgarður. Gylfaflöt 5, 112 Reykjavík, sími 411 1400, netfang: midgardur@reykjavik.is.
- Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis. Efstaleiti 1, 103 Reykjavík, sími 411 1500, netfang: laugardalur.haaleiti@reykjavik.is.
- Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, Laugavegur 77, 101 Reykjavík, sími 411 1600, netfang: vmh@reykjavik.is.
Félagsmiðstöðvar fyrir fullorðið fólk eru jafnframt opnar. Matarþjónusta er einnig opin að undanskildu mötuneytinu á Vitatogi sem verður lokað fyrir aðra en íbúa hússins. Hægt er að fá heimsendan mat með því að hringja í síma 411 9450 eða senda pöntun á maturinnheim@reykjavik.is.
Þjónusta skóla- og frístundasviðs
Samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra munu skólar halda sínu striki. Á öllum skólastigum er hámarksfjöldi þó 50 börn í rými og hámarksfjöldi starfsfólks er 20 í rými.
Forráðamönnum gefst, vegna aukinna smita í samfélaginu, kostur á að hafa börn í jólafríi 22. og 23. desember og á milli jóla og nýárs, dagana 27.-30. desember og verða þá leikskólagjöld og gjöld vegna frístundaþjónustu felld niður. Forráðamönnum er bent á að sækja um niðurfellingu á gjöldum á www.vala.is.
Þjónustuver borgarinnar í Borgartúni og Ráðhús Reykjavíkur verða áfram opin en sóttvarnarreglum um samkomutakmarkanir, tveggja metra reglu og grímuskyldu fylgt þar sem annars staðar.
Reykjavíkurborg bendir á þjónustu í síma 411 1111 og netspjall á vef Reykjavíkurborgar, reykjavik.is.