18 grunn- og leikskólalóðir endurgerðar eða lagfærðar

Umhverfi Skóli og frístund

""

Alls verða átján lóðir við leik- og grunnskóla Reykjavíkurborgar ýmist endurgerðar eða lagfærðar í ár fyrir samtals 500 milljónir. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í júní og þeim ljúki í september.

Alls verða fimm grunn- og leikskólalóðir endurgerðar en framkvæmdir fara að einhverju leyti fram í áföngum. Endurgerð felur í sér endurskipulagningu og endurnýjun lóðar.

Endurgerð leikskólalóða

  • Hálsaskógur – Borg
  • Klambrar, 1. áfangi
  • Mánagarður
  • Vesturborg, 1, áfangi

Endurgerð grunnskólalóðar

  • Breiðholtsskóli, 2. áfangi

Ennfremur verður farið í átaksverkefni á níu leikskólalóðum en þær eru: Dalskóli (eldri hluti), Fífuborg, Klettaborg, Langholt-Sunnuborg, Laugasól-Lækjarborg, Lyngheimar, Nes-Hamar, Sunnufold-Frosti og Sunnufold-Logi.

Til viðbótar verður farið í átaksverkefni á eftirfarandi fjórum grunnskólalóðum en þær eru: Engjaskóli, Melaskóli, Selásskóli og Víkurskóli.

Átaksverkefni eru á lóðum þar sem skipulag er í lagi en verið er að styrkja eða endurnýja einstök svæði innan lóðar. Á þessum lóðum verða leiktæki endurnýjuð á hluta leiksvæða og öryggismöl skipt út með nýju fallvarnarefni og/eða gervigrasi.

Áður hefur verið greint frá því að opin leiksvæði verði endurgerð á sjö stöðum í borginni í ár fyrir 120 milljónir króna.

Skoða pdf-skjal með ýtarlegri upplýsingum og myndum.