Reykjavíkurborg hefur ákveðið að framlengja umsóknarfrest um stofnframlög til og með 29. apríl nk. og er það í samræmi við ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um lengri frest.
Borginni er heimilt heimilt að veita stofnframlög til kaupa eða byggingar á leiguíbúðum fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem eru undir tekju- og eignamörkum.
Markmið með veitingu stofnframlaga er að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga í Reykjavík sem eru undir tekju- og eignarmörkum laga um almennar íbúðir með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi íbúðarhúsnæði til leigu og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda.
Veitingu stofnframlaga er ætlað að stuðla að því að í boði verði leiguíbúðir í Reykjavík á viðráðanlegu verði fyrir þá sem þurfa á því að halda, þ.m.t. fyrir námsmenn, ungt fólk, aldraða, fatlað fólk og fólk sem ekki er fært um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna eða verulegs fjárhagsvanda.