Árla morguns á föstudag verða umferðarljós á gatnamótum Hofsvallagötu og Hagamels óvirk.
Ástæðan er vinna á vegum Veitna sem þurfa að taka rafmagn af við Hagamel frá kl. 05-07 um morguninn. Umferðarljós á gatnamótum Hofsvallagötu og Hagamels verða því straumlaus á meðan.
Einnig verða nokkur hús við Hagamel og hafa Veitur látið íbúa vita af því. Sjá tilkynningu á vef Veitna.