
Miðvikudaginn 25. nóvember klukkan 19.30 gefst fólki tækifæri til að ræða sín á milli um lýðræðið í Reykjavíkurborg á rafrænum fundi. English link below/polski link poniżej
Reykjavíkurborg vinnur nú að mótun lýðræðisstefnu sem mun leggja grunninn að skýrri og gagnsærri umgjörð um íbúalýðræði í borginni. Markmiðið er að efla samráð við borgarbúa og er þessi fjarfundur dýrmætt innlegg í mótun stefnunnar. Fundargestir setja fram sínar hugmyndir að betri og lýðræðislegri borg.
Allir sem hafa áhuga á að leggja lýðræðinu lið eru velkomnir á fundinn.
Dagskrá fundarins:
- Kynning – 15 mínútur
- Lota 1 – tekur 20 mínútur
- Samantekt á lotu eitt í tíu mínútur
- Lota 2 – tekur 20 mínútur
- Samantekt á lotu tvö í tíu mínútur
- Lokaorð, sem taka um tíu mínútur
Fundarlok áætluð klukkan níu.
Öll velkomin að skrá ykkur og taka þátt,
Hugmyndasíða um lýðræðisstefnu borgarinnar