Opnað verður fyrir umsóknir um ný leyfi fyrir götu- og torgsölu mánudaginn 17. febrúar kl. 9:00.
Fyrirkomulag á úthlutun leyfa hefur breyst og ræðst ekki lengur eingöngu af því hvenær sótt er um, heldur verður tekið tillit til nokkurra þátta sem eru:
- Fjölbreytni framboðs vöru og þjónustu,
- útlits á söluaðstöðu
- og að góð reynsla sé af sambærilegri starfsemi umsækjanda.
Götusala er leyfisskyld og tekur til hvers kyns sölustarfsemi sem fer fram á almannafæri utanhúss svo sem á torgum, gangstéttum og í almenningsgörðum. Minniháttar góðgerðarsölur, líkt og tombólur barna og ungmenna, eru ekki leyfisskyldar. Minnt er á að öll matsala er leyfisskyld hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Sótt er um á vef Reykjavíkurborgar á Mínum síðum á Rafræn Reykjavík. Áhugasamir eru hvattir til að undirbúa umsóknir sínar vel.