Himneskt lífrænt rautt pestó innkallað vegna aðskotahlutar

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Aðföng hafa, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Himneskt Lífrænt rautt pestó vegna þess að glerbrot fannst í einni krukku.



 

 

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki

Himneskt.

Vöruheiti

Lífrænt rautt pestó.

Strikamerki

5690350050692.

Nettómagn

130 g.

Best fyrir dagsetningar

Allar í október 2022.

Framleiðandi

La Dispensa di Campagna Srl, Toskana.

Framleiðsluland

Ítalía.

Innflytjandi

Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.

Dreifing

Verslanir Bónus og Hagkaupa um land allt.



Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.



Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600, gaedastjori[hja]adfong.is.