Himneskt lífrænt rautt pestó innkallað vegna aðskotahlutar
Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit
Aðföng hafa, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Himneskt Lífrænt rautt pestó vegna þess að glerbrot fannst í einni krukku.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
|
Vörumerki |
Himneskt. |
|
Vöruheiti |
Lífrænt rautt pestó. |
|
Strikamerki |
5690350050692. |
|
Nettómagn |
130 g. |
|
Best fyrir dagsetningar |
Allar í október 2022. |
|
Framleiðandi |
La Dispensa di Campagna Srl, Toskana. |
|
Framleiðsluland |
Ítalía. |
|
Innflytjandi |
Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík. |
|
Dreifing |
Verslanir Bónus og Hagkaupa um land allt. |
Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600, gaedastjori[hja]adfong.is.