Fundur borgarstjórnar þriðjudaginn 21. apríl

Stjórnsýsla

""

Borgarstjórn fundar á morgun, þriðjudaginn 21. apríl, í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 14:00. Fundurinn er í beinni útsendingu.

Hægt er að fylgjast með fundi borgarstjórnar í beinni útsendingu:

Á dagskrá fundarins eru eftirfarandi mál.

1. Tillaga um framlengingu á heimild til notkunar á fjarfundarbúnaði.

2. Umræða um hættustig almannavarna vegna COVID-19.

3. Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að flýta innleiðingu snjalltækni í starfsemi borgarinnar.

4. Stefna í íþróttamálum Reykjavíkur til 2030, sbr. 33 lið fundargerðar borgarráðs frá 12. mars 2020.

5. Tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um að nýta tómar íbúðir.

6. Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um að samstarf skólaþjónustu og Þroska og hegðunarstöðvar verði formgert til að m.a. stytta biðlista.

7. Tillaga borgarfulltrúa Miðflokksins um uppbyggingu hjúkrunarrýma í borginni.

8. Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins að hægt sé að nota frístundarkortið í sumarnámskeið sem eru að lágmarki tvær vikur en ekki tíu vikur.

9. Kosning í íbúaráð Vesturbæjar.

10. Fundargerð borgarráðs frá 19. mars Fundargerð borgarráðs frá 26. mars Fundargerð borgarráðs frá 2. apríl Fundargerð borgarráðs frá 16. apríl - 20. liður; forsetakosningar 2020 – umboð til borgarráðs.

11. Fundargerðir forsætisnefndar frá 17. mars og 17. apríl.

 Fundargerð menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs frá 6. apríl.

Fundargerðir mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs frá 12. mars og 2. apríl.

Fundargerðir skipulags- og samgönguráðs frá 1. og 15. apríl.

Fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 10. mars.

Fundargerð velferðarráðs frá 1. apríl Reykjavík, 17. apríl 2020.

Pawel Bartoszek er forseti borgarstjórnar.