Fleiri yngri börn fá leikskólapláss

Skóli og frístund

""

Skóla- og frístundaráð samþykkti einróma í dag að setja á fót þróunarverkefni um inntöku ungbarna í tiltekna leikskóla borgarinnar.

Verkefnið felst í að veita þeim leikskólum, sem hafa laus leikskólarými og hafa boðið öllum eldri börnum með umsókn leikskólavist, heimild til að innrita yngri börn,  allt niður í 12 mánaða aldur.

Miðað er við að þeir leikskólar sem taka þátt í verkefninu starfræki að lágmarki eina ungbarnadeild. Skólarnir skulu leggja sig fram um að þróa starf sitt með svo ungum börnum með hliðsjón af nýjustu rannsóknum um velferð, nám og getu barna frá 12 mánaða aldri.

Aldursröð barna skal eftir sem áður ráða þegar kemur að inntöku í sérhvern leikskóla, þau elstu fyrst. Markmið þessa þróunarverkefnis er að fjölga börnum frá 12 mánaða aldri í leikskólum borgarinnar og mæta þörfum þeirra með námi og aðstöðu sem taki mið af þroska þeirra og aldri.

Í fyrsta áfanga taka þrír leikskólar þátt í verkefninu; Dalskóli í Úlfarsárdal, Nes/Bakki í Staðahverfi, og Blásalir í Seláshverfi og er gert ráð fyrir að þeir geti tekið við um 70 börnum frá 12 mánaða aldri.

Ráðið samþykkti jafnframt einróma að hefja undirbúning að opnun nýs leikskóla í Safamýri 5 fyrir 85-90 börn. Miðað er við að hann verði fjögurra til fimm deilda og fái heimild til að innrita börn strax frá 12 mánaða aldri. Stefnt er að því að hann taki til starfa á haustmánuðum 2021.

Samþykktir skóla- og frístundaráðs eru liður í aðgerðaráætluninni Brúum bilið sem miðar að því að brúa það bil sem hefur verið á milli fæðingarorlofs og leikskóla.  Áætlunin gerir ráð fyrir að fjölga nýjum leikskólaplássum um 700-750 fram til 2023 með opnun nýrra leikskóla, viðbyggingum við eldri leikskóla, fjölgun leikskóladeilda í færanlegu húsnæði, stofnun sérútbúinna ungbarnadeilda og fjölgun leikskólarýma hjá sjálfstætt starfandi leikskólum.

Foreldrum sem vilja kynna sér nánar innritun í ungbarnadeildir leikskólanna er bent á að hafa samband við þjónustuver Reykjavíkurborgar í s. 4111111 eða senda erindi á  innritun.leikskolar@reykjavik.is

Sjá meira um ungbarnadeildir í leikskólum borgarinnar.