Fjölgun á tilkynningum til Barnaverndar Reykjavíkur

Covid-19 Velferð

""

Vel er fylgst með þróun mála hjá Barnavernd Reykjavíkur í því ástandi sem skapast hefur vegna Covid-19. Lykiltölur í marsmánuði sýna marktæka aukningu í tilkynningum frá almenningi.

Fram eftir mánuði voru tilkynningar til barnaverndar færri en venjulegt er, en síðari hluta mánaðarins jókst fjöldi þeirra umtalsvert. Opin umræða um þróun mála og nauðsyn þess að börn og ábyrgt fólk í nærumhverfi barna komi ábendingum og tilkynningum beint til barnaverndar hefur þróast hratt og farið víða síðustu vikur og endurspeglast í fjölgun tilkynninga frá þessum hópi.

Tilkynningar í mars 2020:

Það má því til sanns vegar færa að almenningur taki hvatninguna "Við erum öll barnavernd" alvarlega og af ábyrgð.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur verið helsti tilkynnandi til Barnaverndar Reykjavíkur í gegnum tíðina, en skólar og skólaþjónusta, ásamt velferðar- og heilbrigðisþjónustu hafa bætt sig töluvert síðastliðinn áratug, með aukningu frá 62% til 118%.  Finna má frekari upplýsingar um tölfræði í starfsemi Barnaverndar Reykjavíkur á vefsíðu Barnaverndar og á tölfræðivef velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.