Vorblót starfsfólks í skóla- og frístundastarfi

Skóli og frístund

""

Vorblót ætlað öllum sem áhuga hafa á uppeldis- og menntamálum er haldið í dag í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ v/ Stakkahlíð frá 14-18

Dagurinn verður m.a. helgaður kynningum á því sem er að gerast í uppeldis- og kennsluaðferðum í leikskólum borgarinnar. Meðal þess sem kynnt verður eru tæknikistur leikskóla, frumlegir möguleikar þrívíddarprentara en m.a. hefur verið prentaður snípur til að nota í kynfræðslu, útinám, fjarþjálfun, rapp og raftónlist, gátlisti um starf í anda skóla án aðgreiningar, leiðir til að efla lesskilning, ritun til að efla skapandi og gagnrýna hugsun, sjálfsmyndasögur og tungumálasjálfsmyndir, skapandi tónlistarstarf og verkefni meistaranema á Barnamenningarhátíð svo eitthvað sé nefnt af fjölbreyttri dagskrá blótsins.  

Klukkan 16.30 verður  undirritaður samstarfssamningur skóla- og frístundasviðs og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands en í honum felast ýmis starfsþróunartilboð og fleira spennandi. Samningurinn er liður í innleiðingu menntastefnu Reykjavíkurborgar til 2030 „Látum draumana rætast“. Við undirritun munu börn lesa drauma og sungið verður Draumalagið sem samið var í tilefni Barnamenningarhátíðar í ár og Jón Jónsson tónlistarmaður hefur gert vinsælt með flutningi sínum.

Að Vorblóti 2019 standa Menntavísindasvið HÍ og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar í samvinnu við fulltrúa frá Listaháskóla Íslands, Kópavogi, Hafnarfirði, RÚV og fleiri.

Dagskrá blótsins

Eigum saman gott #menntaspjall