Óskað eftir umsóknum um Torg í biðstöðu

Samgöngur Umhverfi

""

Reykjavíkurborg óskar eftir hugmyndaríkum og áhugasömum einstaklingum eða hópum til að taka þátt í verkefninu Torg í biðstöðu sumarið 2019.

Verkefnið Torg í biðstöðu felst í því að gera tilraunir með rými í borgarlandinu með það fyrir augum að auðga mannlíf borgarinnar og stuðla að fjölbreyttri notkun almenningsrýma. Áhugasamir eru hvattir til að senda umsóknir með hugmynd að verkefnum í síðasta lagi sunnudaginn 17. mars 2019.

Áhersla verður á verkefni utan miðborgarinnar í sumar. Engin tiltekin svæði eru sérstaklega auglýst til umsóknar heldur geta umsækjendur sótt um svæði í borgarlandinu sem þeir óska, hvort sem það eru torg, græn svæði, stígar eða önnur svæði. Einnig er hægt að senda umsókn um verkefni og óska eftir aðstoð verkefnastjóra Torg í biðstöðu að finna því heppilegt svæði.

Verkefnin geta verið af ýmsum toga; innsetningar og/eða endurhönnun svæða, viðburðahald, markaðir, leikir eða hvaðeina sem talið er styrkja mannlíf og hvetja til aukinnar notkunar á svæðinu. Hópar og einstaklingar sem taka að sér verkefni finna tímabundnar og skemmtilegar lausnir á sínu svæði og kanna möguleika þess með tímabundnum tilraunum. Um leið er reynt að vekja íbúa og aðra hagsmunaaðila til umhugsunar um sitt nánasta umhverfi og virkja þá til að taka þátt í að þróa svæðin.

Að jafnaði stendur verkefnið yfir frá maí til september ár hvert. Nánari upplýsingar um verkefnið Torg í biðstöðu má finna á vefsíðunni reykjavik.is/torg-i-bidstodu.

Umsóknarfrestur til 17. mars

Umsóknarfrestur verkefna fyrir sumarið 2019 er til og með sunnudeginum 17. mars og skal senda umsóknir á netfangið edda.ivarsdottir@reykjavik.is og merkja með efnislínunni (subject) „Umsókn um biðsvæði“. Umsóknir skulu vera í viðhengi með póstinum þar sem fram kemur:

  • Ítarleg lýsing á verkefninu í texta og myndum/teikningum
  • Staðsetning verkefnisins ef sótt er um tiltekið svæði
  • Verk- og tímaáætlun
  • Áætlaður efniskostnaður
  • Ferilskrá allra umsækjenda með fullu nafni, kennitölu, netfangi og símanúmeri

Stefnt er að því öllum umsóknum verði svarað fyrir 31. mars.

Tenglar

Um Torg í biðstöðu

Facebooksíðan

Borgarsýn bls. 10 um Torg í biðstöðu