Innköllun á Blue Dragon Minced Garlic vegna glerbrots

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Innnes hefur tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að fyrirtækið hafi innkallað Blue Dragon Minced Garlic (maukaðan hvítlauk) vegna glerbrots sem fannst í einni krukku.

 

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:



Vörumerki: Blue Dragon.

Vöruheiti: Minced Garlic.

Strikanúmer: 010338012700.

Best fyrir lok: 04.2021.

Lotunúmer: DWQ 1088 018.

Nettómagn: 110 g.

Innflytjandi: Innnes ehf., Fossaleyni 21, 112 Reykjavík.

Dreifing: Varan var seld til verslana Hagkaupa um land allt, Nettó um land allt, Iceland um land allt, Krambúðin Selfossi, Fjarðarkaup, Jónsabúð, Kaupfélags Steingrímsfjarðar, Kaupfélags Skagfirðinga, Verslunar Einars Ólafssonar, Verslunar Kassans á tímabilinu 22.1.2019 til 2.4.2019.

Viðskiptavinum sem keypt hafa Blue Dragon Minced Garlic með best fyrir lok dagsetningunni 04.2021 er bent á að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.



Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Innness í síma 532 4000 eða í gegnum netfangið ts@innnes.is.