Horfið á fundinn: Er náttúran svarið?

Umhverfi Skipulagsmál

""

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir fundaröð í loftslagsmálum undir heitinu Liggur okkur lífið á? Annar fundur var haldinn þriðjudaginn 23. apríl kl. 20 á Kjarvalsstöðum. Hann var vel sóttur og fróðlegur. 

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir þessari fundaröð ásamt Líf Magneudóttur formanni umhverfis- og heilbrigðisráðs og Sigurborgu Ósk Haraldsdóttir, formanni skipulags- og samgönguráðs, þar sem loftslagsmál verða skoðuð og rædd út frá ýmsum sjónarhornum. Fyrsti fundurinn var 12. mars 2019 og var góður rómur var gerður að honum. 

Á þessum öðrum fundi var m.a. spurt: Hver eru tengsla náttúrverndar og loftslagsmála? Hvað eru náttúrulausnir og af hverju skipta þær máli í loftslagsumræðunni? Hvernig geta borgir verið náttúruvænni? Hvernig nýtast aðgerðir í loftslagsmálum verndun líffræðilegrar fjölbreytni? Hver eru áform Reykjavíkurborgar hvað ofanvatnslausnir varðar, vistvænt byggðaskipulag, græna netið og kolefnisbindingu. Ber okkur skylda til að vernda lífríki jarðar? Skiptir það einungis máli vegna velferðar mannkyns? Hverjir eru hagsmunir náttúrunnar?

Hægt er að horfa á streymi af fundinum og skoða glærur. Íris Þórarinsdóttir verkfræðingur og Snorri Sigurðsson líffræðingur fluttu öflug erindi með glærum á fundinum og Gísli Rafn Guðmundsson borgarhönnuður og Líf Magneudóttir, formaður umhverfis- og heilbrigðisráðs munu bregðast við og taka þátt í umræðum ásamt öðrum gestum. 

Streymi af fundinum 23. apríl 

Glærur Írisar og glærur Snorra.

Streymi af fundinum 12. mars