Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs vegna framsækins leikskóla- og grunnskólastarfs.
Allir geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar, ömmur og afar, starfsfólk SFS, aðrir borgarstarfsmenn, leikskólar, grunnskólar, frístundamiðstöðvar, aðrar stofnanir og samtök. Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Alls verða níu verkefni sem skara fram úr verðlaunuð, þrjú fyrir framsækið leikskólastarf og samstarfsverkefni, þrjú fyrir grunnskólastarf og samstarfsverkefni og þrjú fyrir framsækið frístundastarf og samstarfsverkefni. Hver starfsstaður fær viðurkenningarskjal og verðlaunagrip til eignar.
Hvatningarverðlaun fyrir framsækið leikskólastarf verða afhent á árlegri fagráðstefnu leikskólastarfsfólks í febrúar 2018 - skilafrestur tilnefninga til þeirra verðlauna er 10. janúar.
Hvatningarverðlaun fyrir framsækið grunnskólastarf verða afhent á Öskudagsráðstefnu grunnskólanna sem verður 14. febrúar 2018, skilafrestur tilnefninga er 31. janúar.
Hvatningarverðlaun fyrir framsækið frístundastarf og samstarfsverkefni verða afhent á fagstefnunni Höfuð í bleyti í maí 2018,
Tilnefningar sendist á netfangið sfs@reykjavik.is
Sjá meira um hvatningarverðlaunin.