Skóla- og frístundaráð samþykkti á fundi sínum í dag að setja af stað tilraunaverkefni um kynfræðslu í tveimur grunnskólum á næsta skólaári.
Verkefnið byggir á tillögu starfshóps sem skilaði skýrslu sinni í ársbyrjun 2017. Hann lagði til að ráðist yrði í þriggja ára tilraunaverkefni í kynfræðslu í tveimur grunnskólum borgarinnar, með markvissri fræðslu frá 1. bekk og upp í 10. bekk.
Seljaskóli, félagsmiðstöðin Hólmasel og Heilsugæslan í Mjódd hafa þegar samþykkt að taka þátt í verkefninu, svo og Foldaskóli, félagsmiðstöðin Fjörgyn og Heilsugæsla Grafarvogs. Fræðslustarfið verður á sameiginlegri ábyrgð kennara, frístundaráðgjafa og skólahjúkrunarfræðinga.
Á fyrsta ári verður fræðslan eingöngu í unglingadeild, á öðru ári bætist miðstigið við og á þriðja ári eiga allir nemendur skólanna tveggja að fá kynfræðslu.
Á meðan á tilraunaverkefninu stendur verða hreinlætisvörur, s.s. dömubindi og túrtappar á salernum skólanna og félagsmiðstöðva, auk þess sem smokkar verða aðgengilegir hjá félagsmiðstöð.
Áformað er að meta árangur þessa tilraunaverkefnis með könnunum og rýnihópaviðtölum við nemendur og starfsfólk áður en sambærilegt verkefni verður boðið öllum skólum og félagsmiðstöðvum borgarinnar.
Sjá skýrslu starfshóps um stefnumótun í kynfræðslu í skóla- og frístundastarfi.