Sorphirða við áramót

Umhverfi

""

Hirða heimilisúrgangs hefur gengið vel um hátíðarnar en þetta er álagstími fyrir starfsfólk sorphirðunnar. Unnið verður í Vesturbæ og í Breiðholti um helgina.

Starfsfólk sorphirðunnar verður að störfum um áramótahelgina en hirðan er á áætlun. Lokið verður við að hirða Grafarvog í dag föstudag og svo verður unnið við losun á gráum tunnum undir blandaðan úrgang í Vesturbæ/Miðbæ á laugardag og sunnudag. Einnig verða tunnur undir pappír og plast losaðar í Breiðholti.

Magn úrgangs eykst í kringum hátíðirnar. Hægt er að kaupa sérmerkta poka undir aukaúrgang sem eru seldir fimm saman á rúllu hjá N1 stöðvum í Reykjavík og í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14. Einnig er hægt að fara með úrgang á grenndar- eða endurvinnslustöðvar ef úrgangur rúmast ekki ílátum við heimili. Opið verður á endurvinnslustöðvum SORPU á milli hátíða, frá og með 27. til 30. desember.

Hvað fer hvert í flokkun?

Gott er að kynna sér flokkun úrgangs en jólagjafapappír, jólakort og pakkaumbúðir úr pappírsefnum eru t.d. flokkuð með pappír og pappa. Leifar af stjörnuljósum flokkast sem málmur. 

Mikilvægt er að allir leggist á eitt og íbúar hreinsi sjálfir upp leifar af skoteldum í sínu nánasta umhverfi. Mælst er til þess að fólk skili skoteldaleifum sem safnast saman á endurvinnslustöðvar SORPU en setji ekki í tunnur við heimili. Jólatré eru flokkuð með trjágreinum og Reykvíkingar fara með þau sjálfir á endurvinnslustöðvar SORPU.

Sorphirða í Reykjavík

http://www.sorpa.is/