Hjólað í vinnuna hófst með formlegum hætti í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum í morgun. heilsu og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sem haldið hefur verið árlega frá árinu 2003.
Megin markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu í þrjár vikur í maí ár hvert.
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Alma Dagbjört Möller, landlæknir, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Frímann Gunnarsson, þáttastjórnandi ávörpuðu gesti áður en þeir héldu út í veðurblíðuna og hjóluðu til vinnu.
Íþrótta- og Ólympíusamband íslands stendur í sextánda skipti fyrir Hjólað í vinnuna, heilbrigðri vinnustaðakeppni um allt land, frá 2. – 22. maí.
Verkefnið höfðar til starfsfólks á vinnustöðum landsins og hefur þátttakan margfaldast frá því að verkefnið fór af stað. Keppt er um fjölda þátttökudaga en lið geta jafnframt skráð sig í kílómetrakeppnina þar sem keppt er um heildarfjölda kílómetra.
Í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar um að efla vistvæna ferðamáta er það meginmarkmið Hjólreiðaáætlunar 2015–2020 að auka hlutdeild hjólreiða í öllum ferðum í borginni. Aukin hlutdeild hjólreiða er hagkvæm, hefur góð áhrif á umhverfi, lýðheilsu og lífsgæði og skapar betri borg.
Meira um átakið hjólað í vinnuna
Lykilframkvæmdir í borginni að bættum hjólastígum