Uppbygging innviða og atvinnuhúsnæðis

Atvinnumál Fjármál

""

Borgarstjóri býður til opins fundar um uppbyggingu atvinnuhúsnæðis  og innviða á föstudag. Þar verður farið yfir stóru myndina í þeirri gríðarlega miklu uppbyggingu og atvinnusköpun sem á sér stað um þessar mundir, auk þess sem horft verður til þeirra framtíðarverkefna sem eru á döfinni.

Fundurinn er haldinn Ráðhúss Reykjavíkur föstudaginn 19. maí, kl. 9.00 – 12.00, en boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8.30.

Dagskráin er fjölþætt og spannar helstu uppbyggingarmálin eins og ferðaþjónustu, verslun, hátækni, skapandi greinar, samgöngur, hafnarsvæði og sjávarútveg.

Athafnaborgin – uppbygging innviða og atvinnuhúsnæðis.

Dagskrá:

  • Dagur B. Eggertsson borgarstjóri: Athafnaborgin - uppbygging atvinnuhúsnæðis og innviða
  • Magnea Þórey Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Icelandair hotels: Uppbygging á hótelum í góðri sátt við nærumhverfið
  • Helgi Gunnarsson forstjóri Regins: Uppbygging á nýju verslunarhúsnæði í miðborginni – hugmyndafræði og samráð við hagsmunaaðila
  • Stefanía G. Halldórsdóttir framkvæmdastjóri CCP á Íslandi: Gróska – nýjar höfuðstöðvar CCP
  • Páll Hjaltason, arkitekt hjá PlusArk: Kvikmyndaþorp í Gufunesi
  • Ólöf Kristjánsdóttir hjá Mannvit: Borgarlína og tækifæri í þéttingarreitum
  • Hildur Gunnlaugsdóttir, arkitekt hjá Faxaflóahöfnum: Uppbygging í höfnum Reykjavíkur
  • Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri Sjávarklasans: Haftengd nýsköpun og atvinnuþróun í Reykjavík.

Fundurinn er öllum opinn en þeir sem ætla mæta eru hvattir til að láta vita af sér á Facebook: Athafnaborgin - uppbygging innviða og atvinnuhúsnæðis í Reykjavík.

Tengd síða: reykjavik.is/athafnaborgin