Borgarstjóri býður til opins fundar um uppbyggingu atvinnuhúsnæðis og innviða á föstudag. Þar verður farið yfir stóru myndina í þeirri gríðarlega miklu uppbyggingu og atvinnusköpun sem á sér stað um þessar mundir, auk þess sem horft verður til þeirra framtíðarverkefna sem eru á döfinni.
Fundurinn er haldinn Ráðhúss Reykjavíkur föstudaginn 19. maí, kl. 9.00 – 12.00, en boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8.30.
Dagskráin er fjölþætt og spannar helstu uppbyggingarmálin eins og ferðaþjónustu, verslun, hátækni, skapandi greinar, samgöngur, hafnarsvæði og sjávarútveg.
Athafnaborgin – uppbygging innviða og atvinnuhúsnæðis.
Dagskrá:
- Dagur B. Eggertsson borgarstjóri: Athafnaborgin - uppbygging atvinnuhúsnæðis og innviða
- Magnea Þórey Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Icelandair hotels: Uppbygging á hótelum í góðri sátt við nærumhverfið
- Helgi Gunnarsson forstjóri Regins: Uppbygging á nýju verslunarhúsnæði í miðborginni – hugmyndafræði og samráð við hagsmunaaðila
- Stefanía G. Halldórsdóttir framkvæmdastjóri CCP á Íslandi: Gróska – nýjar höfuðstöðvar CCP
- Páll Hjaltason, arkitekt hjá PlusArk: Kvikmyndaþorp í Gufunesi
- Ólöf Kristjánsdóttir hjá Mannvit: Borgarlína og tækifæri í þéttingarreitum
- Hildur Gunnlaugsdóttir, arkitekt hjá Faxaflóahöfnum: Uppbygging í höfnum Reykjavíkur
- Berta Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri Sjávarklasans: Haftengd nýsköpun og atvinnuþróun í Reykjavík.
Fundurinn er öllum opinn en þeir sem ætla mæta eru hvattir til að láta vita af sér á Facebook: Athafnaborgin - uppbygging innviða og atvinnuhúsnæðis í Reykjavík.
Tengd síða: reykjavik.is/athafnaborgin