Styrkir til framsækins skóla- og frístundastarfs fyrir rúmar 22 milljónir króna
Skóli og frístund
Skóla- og frístundaráð afgreiddi á fundi sínum í dag úthlutanir almennra styrkja og þróunarstyrkja til skóla- og frístundastarfs á árinu 2017, fyrir alls um 22,5 milljónir króna.
Alls bárust 60 umsóknir um þróunarstyrki, en markmið þeirra er að styðja við verkefni sem stuðla að nýjungum, rannsóknum eða nýbreytni í skóla- og frístundastarfi. Nær 16 milljónum króna verður varið til að styrkja 41 verkefni.
Hæsti þróunarstyrkurinn til grunnskóla kemur í hlut Fellaskóla sem ætlar að verja honum til að styrkja foreldrasamstarf með félagsmiðstöð fyrir foreldra og byggja þannig upp meira traust í skólasamfélaginu. Fellaskóli fékk einnig styrk til verkefnisins Brúarsmiður sem miðar að því að efla samskipti og samstarf milli starfsfólks, barna og foreldra af erlendum uppruna.
Hæsti þróunarstyrkinn til leikskólastarfs rennur til verkefnisins Töfrandi tungumál í leikskólanum Miðborg, eða tvær milljónir króna.
Hæsti styrkurinn til nýbreytni í frístundastarfi fer til Tíunnar, eða 600.000 kr., vegna fjölmenningarverkefnis sem miðar að því að auka þátttöku barna og unglinga með annað móðurmál en íslensku í félagsmiðstöðvarstarfinu, efla færni starfsmanna, bæta upplýsingamiðlun og hafa áhrif á viðhorf barna og unglinga til annarra menningarheima.
Tvær skólahljómsveitir fengu jafnframt þróunarstyrki svo og fjögur sameiginleg þróunarverkefni leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva.
Sjá yfirlit yfir þróunarstyrki skóla- og frístundaráðs 2017.
Alls bárust 16 umsóknir um almenna styrki og fengu sjö verkefni styrki að andvirði 4,5 milljónir króna. Sá hæsti kom í hlut Tónstofu Valgerðar eða 1,5 milljón króna til verkefnisins Tónvangur.
Meðal annarra verkefna sem fengu almenna styrki má nefna Vellíðan í skólum og Kynfræðslu Pörupilta.
Sjá yfirlit yfir almenna styrki skóla- og frístundaráðs 2017