Soffía hefur liðin ár verið sviðsstjóri fræðslusviðs á Akureyri en á árunum 2006-2014 var hún skólastjóri á Bolungarvík.
Soffía hefur einnig starfað sem stjórnandi tónlistarskóla og kennari í Kennaraháskólanum, Leiklistarskólanum og Fósturskóla Íslands. Hún hefur lokið framhaldsnámi í stjórnun menntastofnana og er með meistaragráðu í menningarstjórnun.
Soffía er boðin velkomin til starfa sem faglegur leiðtogi skólastjóra í borginni, en hún tekur við starfinu af Guðlaugu Sturlaugsdóttur í byrjun nýs árs.