Skrautdúfur í Húsdýragarðinum

Mannlíf Skóli og frístund

""

Skrautdúfusýning verður í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum laugardaginn 28 janúar frá kl. 11 til 16.  Sýningin verður í nýjum skála við hlið Kaffihússins en byggingu hans er nýlokið.  

Yfir hundrað fuglar af fjölmörgum tegundum og litaafbrigðum verða til sýnis og þar með stærsta og fjölbreyttasta skrautdúfusýning um árabil. Mikil gróska er í dúfnarækt um þessar mundir, gamlir dúfnabændur hafa byrjað aftur og nýir bæst í hópinn jafnframt því sem fluttar hafa verið inn nýjar tegundir. Þótt allar dúfur eigi sama forföður, bjargdúfuna, þá er gríðarmikill munur á dúfum sem sjást á torgum stórborga og skrautdúfum sem ræktaðar hafa verið í aldir til þess að ná fram einstökum litaafbrigðum og útliti. Dúfur hafa fylgt manninum í þúsundir ára og verið nýttar til manneldis, póstferða og sem gæludýr. Fyrstu skrautdúfurnar bárust til Íslands með dönskum kaupmönnum á nítjándu öld og hafa verið ræktaðar hér síðan.