Miðvikudaginn 1. nóvember verður hinn árlegi félagsmiðstöðvadagur haldinn hátíðlegur í Reykjavík. Markmið dagsins er að vekja athygli á því uppbyggilega frístundastarfi sem þar fer fram fyrir börn og unglinga og bjóða gestum og gangandi að taka þátt í því. Yfirskrift dagsins að þessu sinni er OKKAR FRAMTÍÐ.
Dagskrá félagsmiðstöðvanna verður fjölbreytt í tilefni dagsins en þar má bæði kynna sér hefðbundin viðfangsefni og skemmtilegar uppákomur sem tileinkaðar eru deginum.
Í Tíunni í Árbæ getur öll fjölskyldan spreytt sig í spurningakeppni þar sem kemur í ljós hversu vel þær þekkja hver aðra og þeir sem hafa sterkan maga og mikla matarlyst geta att kappi í kókosbolluáti.
Í Dregyn í Grafarvogi verður kynning á starfinu, happadrætti og krakkarnir sýna framlag Kelduskóla í hæfileikakeppninni Skrekk.
Í Öskju við Klettaskóla geta gestir tekið þátt í Playstation-móti, spilað, farið í þythokkí og gætt sér á veitingum.
Í Buskanum í Laugardal verður unnið að hugarkorti um starfsemina, spilað bingó og Varúlfur og boðið upp á skemmtiatriði frá unglingunum.
Í tilefni af 25 ára afmæli Hólmasels í Breiðholtinu verður grillið dregið fram og boðið upp á pylsur og fleira góðgæti. Áhersla verður lögð á að fá í heimsókn fastagesti Hólmasels síðastliðin 25 ár.
Félagsmiðstöðin Frosti tekur virkan þátt í félagsmiðstöðvadeginum og þar verður meðal annars kynning á því hvernig dagskrárgerð í starfinu fer fram. Hægt verður að grípa í spil, prófa skemmtilega tölvuleiki, skoða aðstöðuna og kynnast starfsfólkinu.
Félagsmiðstöðvarnar Höllin í Grafarvogi, Hofið í Vesturbæ og Hellirinn í Breiðholti fagnar allar á 10 ára afmæli sínu á félagsmiðstöðvadeginum og bjóða upp á veitingar og skemmtilega samveru foreldra, barna, unglinga og starfsfólks.
Sjá yfirlit yfir félagsmiðstöðvar í Reykjavík . Dagskrár og opnunartíma allra félagsmiðstöðva í Reykjavík og heimilisföng má finna á fésbókarsíðum þeirra og heimasíðum.
Félagsmiðstöðvadagurinn er haldinn á öllu landinu fyrir tilstilli SAMFÉS, samtaka félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi, en dagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2005.
Börn, unglingar og frístundaráðgjafar bíða spennt eftir að fá ykkur í heimsókn í félagsmiðstöðina.