Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Rafal Dutkiewicz borgarstjóri Wroclaw í Póllandi undirrituðu í samstarfssamning milli borganna tveggja í ráðhúsi Wroclaw í morgun.
Borgarstjóri er í opinberri heimsókn í Wroclaw sem stendur yfir dagana 5. til 8. apríl. Í heimsókninn hefur borgarstjóri heimsótt stofnanir og hefur kynnt sér skipulagsmál og þær áskoranir sem borgir standa frammi fyrir varðandi borgarþróun.
Wroclaw er stærsta borgin í vestanverðu Póllandi og liggur á bökkum árinnar Oder . Íbúafjöldi í Wroclaw 635.075 og er hún fjórða stærsta borg Póllands. Beint flug mun hefjast á milli Keflavíkur og Wroclaw í maí.
Reykjavíkurborg og Wroclaw hafa verið í gagnkvæmum þekkingarsamskiptum og heimsóknum í tengslum við verkefnið DiverCITY: City For All Conference. Verkefnið var fjármagnað af Uppbyggingarsjóði EES (EEA/Norwegian Grants) og fólst m.a. í gagnkvæmum þekkingarsamskiptum og heimsóknum sérfræðinga af umhverfis- og skipulagssviðum borganna um aðferðir til að leysa úr áskorunum á sviði borgarþróunar.
Þá hefur Reykjavík, í gegnum Bókmenntaborg UNESCO, skóla- og frístundasvið og Landakotsskóla átt í menningarsamstarfi, einnig styrktu af Uppbyggingarsjóði EES, við samtökin Towarzystwo Aktywnej Komunikacji (Active Communications Society) í Wroclaw. Samvinnuverkefnið nefnist Storytelling Lab for Young Adults og fólst það í samvinnu nemenda í 9. og 10. bekk Landakotsskóla og jafnaldra þeirra frá Wroclaw veturinn 2015-16.
Í samstarfssamningnum sem borgarstjórarnir undirrituðu í morgun er meðal annars kveðið á um að borgirnar deili með sér þekkingu og reynslu, sérstaklega hvað varðar stjórnun og verndun arfleifðar og einkenna beggja borga.
Borgirnar munu í sameiningu vinna að verkefnum sem ráðist verður í hverju sinni og stuðla að friðsamlegum og viðvarandi samskiptum milli íbúa borganna. Borgirnar munu meta sameiginleg markmið er varða þróun Reykjavíkur og Wroclaw, sérstaklega hvað varðar heilbrigt og öruggt félagslegt umhverfi, notkun og verndun byggingarsögulegs arfs, lífsgæði og lífsskilyrði íbúanna og þróun borgarsamgangna.