Opnað fyrir umsóknir um tónlistarnám 9. mars

Menning og listir Skóli og frístund

""

Opnað verður fyrir rafrænar umsóknir um tónlistarnám í tónlistarskólum með þjónustusamninga við Reykjavíkurborg  skólaárið 2017-2018 kl. 09:00 fimmtudaginn 9. mars. 

Nemendur sem þegar stunda tónlistarnám í tónlistarskólunum þurfa að endurnýja umsóknir í samráði við sinn skóla.   

Sótt er um í gegnum Rafræna Reykjavík

Ef spurningar vakna hafið vinsamlegast samband við þann tónlistarskóla sem um ræðir.

Sjá tónlistarnám í Reykjavík.

Innritun í skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar fer fram síðar og verður tilkynnt um það sérstaklega.