Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir vegna verkefna á árinu 2018. Umsóknarfresti lýkur klukkan 12 á hádegi mánudaginn 2. október 2017.
Umsóknir um styrki fara fram á Rafrænni Reykjavík. Opnað var fyrir umsóknir í dag 1. september 2017 vegna verkefna á árinu 2018. Umsóknarfrestur er til kl. 12.00 á hádegi þann 2. október 2017 og eru einungis teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Reykjavíkurborgar kveða á um. Við mat á umsóknum munu reglur Reykjavíkurborgar um styrki og mannréttindastefna Reykjavíkurborgar vera höfð til hliðsjónar. Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Þá eru styrkir alla jafna hvorki veittir til kaupa á húsnæði né til greiðslu fasteignagjalda. Umsóknir verða metnar með hliðsjón af eftirfarandi:
• markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð
• hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf
• hvort unnt sé að meta framvindu verksins
• hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem styrk hafa hlotið uppfylli lágmarkskröfur
• væntanlegum árangri og ávinningi fyrir umrædda starfsemi
• fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra fjármögnun sem einnig skal fylgja umsókn
Einnig geta sviðin hver haft sínar áherslur þegar kemur að úthlutun styrkja.