Ágústa Amalía Friðriksdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri í Bakkaborg og Gyða Guðmundsdóttir tekur við stjórnartaumum í leikskólanum Borg.
Ágústa Amalía lauk prófi frá Fósturskóla Íslands 1991 og diplómu í stjórnun og forystu í skólaumhverfi frá Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík og Capacent 2008. Ágústa hefur starfað sem aðstoðarleikskólastjóri í eitt ár og sem leikskólastjóri í 17 ár.
Gyða lauk B.Ed í leikskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands 2002 og diplómu í uppeldis- og menntunarfræðum með áherslu á stjórnun menntastofnana frá sama skóla 2007. Gyða hefur starfað sem deildarstjóri í tvö ár og sem aðstoðarleikskólastjóri í 13 ár.