Leitað eftir tilnefningum til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur

Menning og listir Skóli og frístund

""

Barnabókaverðlaun Reykjavíkur eru afhent árlega, síðasta vetrardag, við hátíðlega athöfn í Höfða. Nú er komið að því að tilnefna til þeirra. 

Barnabókaverðlaunin eru þrískipt og eru veitt fyrir bestu frumsömdu barnabókina á íslensku, fyrir bestu íslensku þýðinguna á barnabók og fyrir best myndskreyttu barnabókina.

Markmið verðlaunanna er að hvetja höfunda, myndhöfunda og þýðendur til ritsmíða, myndskreytinga og þýðinga bóka fyrir börn og unglinga, stuðla að auknum bóklestri og vekja athygli á því sem vel er gert í íslenskri barnabókaútgáfu, hvort heldur í orðlist eða myndlist. Tilkynnt verður um fimm tilnefningar í hverjum af þremur flokkum verðlaunanna í mars, á sýningu myndskreytinga úr nýjum íslenskum barnabókum í Gerðubergi. 

Nú gefst bókaútgáfum og sjálfstæðum útgefendum kostur á að tilnefna til allra þriggja flokka verðlaunanna eina barna- eða unglingabók eða fleiri sem gefnar voru út á árinu 2017.

Dómnefnd barnabókaverðlauna skóla- og frístundaráðs fyrir árið 2018 er skipuð Brynhildi Björnsdóttur formanni, Jónu Björgu Sætran, Gunnari Birni Melsted, Davíð Stefánssyni, fulltrúa Rithöfundasambands Íslands, og Þórdísi Aðalsteinsdóttur, fulltrúa Sambanda íslenskra myndlistarmanna. 

Vinsamlegast sendið fimm eintök af hverri tilnefndri bók til skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur merkt barnabókaverðlaun sem ætluð eru dómnefnd til yfirlestrar. Æskilegt er að tilnefndar bækur sem allra fyrst og í seinasta lagi 20. desember næstkomandi.



Vinsamlegast merkið sendinguna:

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar - Barnabókaverðlaun

Borgartúni 12-14

105 Reykjavík

Meira um Barnabókaverðlaunin.