Hver hefur náð árangri í vistvænum samgöngum?

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Samgönguviðurkenning Reykjavíkurborgar verður veitt í september í tengslum við samgönguviku og nú er kallað eftir umsóknum eða tilnefningum um fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir og einstaklinga, sem náð hafa árangri eða gripið til aðgerða í samgöngumálum.

Dómnefndin byggir val sitt á árangri og aðgerðum sem gripið hefur verið til.  Dæmi um aðgerðir er t.d. hvort starfsfólki hafi verið gert auðveldara fyrir með að nýta sér vistvæna samgöngumáta; hvort dregið hafi verið úr umferð og/eða stuðlað að notkun vistvænna orkugjafa.

Fararskjótar, sturtur og strætómiðar

Betur má sjá áhersluþætti í gátlista á umsóknareyðublaði, en þar eru þessi atriði tilgreind:

• Lýsið hvernig ferðavenjum starfsfólks er almennt háttað.

• Hvernig eru ferðavenjur starfsfólks kannaðar og hvenær hófust slíkar mælingar?

• Hvernig hafa ferðavenjur starfsfólks breyst í gegnum tíðina?

• Er reglubundið verið að mæla heilsu og/eða fjarvistir starfsmanna? Ef svo er vinsamlegast lýsið nánar.

• Er boðið uppá sveigjanlegan vinnutíma eða eitthvert fyrirkomulag til að starfsmenn geti ferðast til og frá vinnu utan annatíma?

• Lýsið þeim fararskjótum sem eru í boði fyrir starfsfólk á vinnutíma, t.d. hvort hjól eða bílar séu tiltæk fyrir starfsfólk til vinnutengdra og/eða persónulegra ferða?

• Lýsið þeirri aðstöðu sem er til staðar til að geyma reiðhjól.

• Er aðstaða fyrir starfsfólk til að fara í sturtu og/eða til að skipta um föt í boði fyrir þá sem mæta til vinnu hjólandi eða gangandi?

• Er hægt að nálgast strætómiða á vinnustað?

• Hvernig er bílastæðamálum fyrirtækisins hagað til að hafa hvetjandi áhrif á virkan samgönguhátt starfsmanna?

• Eru innstungur fyrir rafbíla og/eða hjól til staðar við vinnustaðinn?

• Veitir fyrirtækið starfsfólki samgöngustyrk eða annan fjárhagslegan hvata til að nýta vistvænar samgöngur í ferðir til/frá vinnu? Ef svo er, hvernig er þeim hvatagreiðslum háttað?

• Er fræðsla og/eða þjálfun í boði fyrir starfsfólk sem tengist virkum samgöngumátum, s.s. hjólafærni? Er sú fræðsla ókeypis og í boði á vinnutíma?

Gátlistinn er til að einfalda gerð umsóknarinnar og auðvelda dómnefnd áreiðanlegan og réttmætan samanburð. Aðeins þarf að svara því sem við á og vakin athygli að listinn sé ekki tæmandi.

Skil umsókna til 13. september 2017

Umsóknir og tilnefningar verða að hafa borist Reykjavíkurborg í síðasta lagi í lok dags 13. september næstkomandi, merktar „Samgönguviðurkenning“. Þær sendist á netfangið usk@reykjavik.is eða á póstfangið Borgartún 12-14, 105 Reykjavík.

Umsóknareyðublað um samgönguviðurkenningu Reykjavíkurborgar