Hátt í fimmtán þúsund börn hefja skólastarf

Skóli og frístund

""

Grunnskólar borgarinnar verða settir í dag og hefst skólastarf samkvæmt stundaskrá á morgun. 

Eftirvænting ríkir í grunnskólum borgarinnar í dag þar sem hátt í fimmtán þúsund börn og unglingar eru að koma til starfa. Skipulagt skólastarf hefst í flestum skólum á morgun.

Við skólasetningu í dag var frístundastarfið jafnframt kynnt fyrir börnum og foreldrum en það hefst í vikunni. Yngstu börnin hafa að venju forgang inn á frístundaheimilin þar til þau verða fulllmönnuð. Auk þess er boðið upp á fjölbreytt frístundastarf í félagsmiðstöðvunum fyrir eldri börnin. 

Tæplega fjórtán hundruð börn eru að hefja sitt fyrsta skólaár. Margir ungir vegfarendur eru því að læra á leiðir í og úr skóla og börnum og unglingum fjölgar í umferðinni. Það er því full ástæða til að hvetja ökumenn til að sýna þeim tillit.