Greinilegt var að fólk kunni vel að meta þá rúmlega 300 viðburði sem voru í boði á Menningarnótt sem lauk um hálftólf á laugardagskvöld með glæsilegri flugeldasýningu í boði Reykjavíkurborgar. Talið er að vel á annað hundrað þúsund manns hafi skemmt sér í miðborg Reykjavíkur yfir daginn og fram á kvöld í afar fallegu veðri.
Hátíðarsvæðið var aftur stækkað í ár og náði út á Granda, að Hlemmi og Klambratúni og út að Veröld - húsi Vigdísar. Mannfjöldinn dreifði sér því vel í miðbæ Reykjavíkur en mikil þátttaka var í öllu viðburðahaldi.
Lögreglan segir að aðsókn hafi verið afar jöfn og þétt frá hádegi og fram á kvöld. Þá gekk umferð greiðlega frá miðborginni strax eftir flugeldasýninguna. Stemningin var afar góð allan tímann og greinilegt að fólk kunni vel að meta að geta gengið um götur miðborgarinnar á þessum degi án þess að þurfa að hafa áhyggjur af bílaumferð.
Áshildur Bragadóttir forstöðukona Höfuðborgarstofu sem sér um skipulagningu Menningarnætur þakkaði öllum sem komu að þessum glæsilega viðburði.
„Mig langar fyrir hönd Reykjavíkurborgar, Höfuðborgarstofu og stjórnar Menningarnætur að þakka öllum gestum hátíðarinnar, viðburðarhöldurum, rekstraraðilum, íbúum í miðborginni, lögreglu, björgunarsveitum, slökkviliði, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, öryggisaðilum og Strætó innilega fyrir einstaklega vel heppnaða Menningarnótt. Mörg hundruð manns lögðu hönd á plóg til að gera hátíðina sem glæsilegasta og það tókst svo sannarlega,“ sagði Áshildur.
Stjórn Menningarnætur þakkar borgarbúum og gestum Menningarnætur fyrir samveruna.