Fjölsótt öskudagsráðstefna grunnskólakennara

Skóli og frístund

""

Á sjöunda hundrað reykvískra grunnskólakennara sátu öskudagsráðstefnu á Nordica hóteli þar sem fjallað var um hvernig fjölbreytt nám stuðlar að vexti allra nemenda.

Aðalfyrirlesari var breska fræðikonan Shirley Clarke, en hún hefur stundað rannsóknir og skrifað fjölmargar bækur um kennslu og leiðir til að virkja nemandann til að stjórna eigin námi, m.a. með leiðsagnarmati. Óhætt er að segja að fyrirlestur hennar hafi vakið óskipta ánægju grunnskólakennara enda eru kennsluaðferðir þær sem hún byggir fræði sín á afar áhugaverðar og miða alltaf að því að virkja nemendur til náms í samstarfi og samtali. Shirley Clarke er heiðursdoktor við Háskólinn í Greenwich.

Að loknu ávarpi Jónínu Ómarsdóttur kennara í Rimaskóla, ávarpi borgarstjóra og aðalerindi ráðstefnunnar var boðið upp á fimm málstofur þar sem fjallað var um vendikennslu, tækni og miðlun í kennslustofunni, lestraráhuga, nýja nálgun í kennslu unglinga og sjálfsmynd nemenda.

Á Öskudagsráðstefnunni voru einnig afhent hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið grunnskólastarf og minningarverðlaun Arthurs Morthens fyrir störf í þágu stefnu um skóla án aðgreiningar. Þrír skólar fengu hvatningarverðlaun; Ártúnsskóli, Grandaskóli og Klettaskóli og þrír aðrir sérstaka viðurkenningu; Hólabrekkuskóli, Rimaskóli og Vættaskóli.

Minningarverðlaun Arthurs Morthens komu í hlut Fellaskóla. Sjá frétt. 

Öskudagsráðstefnan er fastur liður í faglegu starfi reykvískra kennara og einn stærsti  fagvettvangur skólafólks á landinu. Hún er skipulögð af skóla- og frístundasviði í samstarfi við Kennarafélag Reykjavíkur og Skólastjórafélag Reykjavíkur.