Minningarverðlaun Arthurs Morthens voru veitt við hátíðlega athöfn í dag, öskudag. Það var einróma álit valnefndar að veita Fellaskóla verðlaunin í ár fyrir verkefnið Allir á heimavelli, metnaðarfullt skólastarf án aðgreiningar.
Með rökstuðningi valnefndar segir að í Fellaskóla sé margbreytileiki nemenda- og starfsmannahópsins allsráðandi. Töluð eru 26 tungumál í skólanum, um 70% nemenda eru með íslensku sem annað mál og rekja uppruna sinn til fjölmargra landa víðs vegar um heiminn. Sýn skólans er að allir séu þar á heimavelli og nemendur eru viðurkenndir eins og þeir eru, allar fjölskyldur eru velkomnar í skólann og starfsfólk skólans er stolt af viðhorfum sínum. Lögð er markviss áhersla á að byggja upp traust og vinna að þróunarverkefnum og samþættingu í skólastarfi með það að markmiði að skapa vettvang fyrir raddir nemenda, efla skólaandann og þjálfa nemendur sem virka þátttakendur í lýðræðissamfélagi. Auk þessa er boðið upp á morgungraut í skólanum og í uppsiglingu er einnig meiri vinna með foreldrum.
Arthur Morthens helgaði starfsævi sína börnum sem áttu á brattann að sækja og var talsmaður þeirra, oft á tíðum í erfiðri réttindabaráttu. Hann átti farsælan starfsferil og stóð að stefnumótun borgarinnar í sérkennslumálum en leiðarljós hennar er hugmyndafræðin skóli án aðgreiningar. Við andlát hans á síðasta ári samþykkti skóla- og frístundaráð að veita árlega einum grunnskóla í borginni viðurkenningu í minningu Arthurs Morthens.
Verðlaunin í ár voru málverk eftir Tolla, sem ber nafnið „Leitað svara“ ásamt verðlaunaskjali.
Alls bárust fimm tilnefningar að þessu sinni:
a. Fellaskóli - Metnaðarfullt skólastarf án aðgreiningar þar sem margbreytileikinn er alsráðandi undir yfirskriftinni „Allir á heimavelli“.
b. Hólabrekkuskóli - Nám á nýjum nótum - Skapandi og fjölbreytt skólastarf í unglingadeild
c. Laugarnesskóli - Fjölbreyttar leiðir í skólastarfi án aðgreiningar
d. Tjarnarskóli - Nám sniðið að hverjum nemanda
e. Vættaskóli – Valver Vættaskóla
Valnefnd var skipuð fulltrúum frá Kennarafélagi Reykjavíkur, Félagi íslenskra sérkennara, Barnaheillum og SAMFOK ásamt fulltrúa skóla- og frístundasviðs.