Bensi og aðrir fuglar

Mannlíf Menning og listir

""

Í október verður skáldið Benedikt Gröndal og nýopnað Gröndalshús í Grjótaþorpi í brennidepli hjá Bókmenntaborginni Reykjavík. Húsið var opnað þann 17. júní síðastliðinn í glæsilegri endurgerð Minjaverndar og er þar sýning um Benedikt Gröndal og Reykjavík á hans tímum.

Benedikt Gröndal fæddist þann 6. október 1826 og er októbermaður hjá Bókmenntaborginni  helgaður þessum litríka lista- og fræðimanni með dagskrá í húsinu sem við hann er  kennt. Þar bjó hann tvo síðustu tugi ævinnar, frá 1888 – 1907, ásamt Helgu dóttur sinni og vinnustúlkum, en Gröndal hafði þá misst Ingu konu sína og tvær aðrar dætur.

Frítt er inn í Gröndalshús allan októbermánuð og er húsið opið fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 13 – 17.

Fjölbreytt dagskrá

Öll þriðjudagskvöld í októbermánuði eru helguð Gröndal og í Gröndalshúsi verður dagskrá þar sem farið verður yfir sögu hússins og skáldsins.

3. október: Guðmundur Andri Thorsson fjallar um skáldið Gröndal.

10. október: Kristinn H. Skarphéðinsson náttúrufræðingur fjallar um náttúrufræðinginn Gröndal.

17. október: Hjörleifur Stefánsson arkitekt segir frá sögu hússins og endurgerð þess.

24. október: Guðmundur Oddur Magnússon, Goddur, fjallar um myndlistarmanninn Gröndal.

31. október: Guðrún Egilson segja sögur af þessum skrautlega ættingja sínum, Benedikt Gröndal.

Sýningaropnun í Landsbókasafni og blysför á afmælisdegi skáldsins.

„Myndaði ég stafi og marga dráttu…“

Benedikt Gröndal – skrifarinn og skáldið

Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn opnar sýningu á afmælisdegi Gröndals þann  6. október þar sem úrval af handritum hans verður til sýnis. Fyrir opnunina standa safnið og Bókmenntaborgin saman að dagskrá við Gröndalshús og blysför til heiðurs Gröndal, en nemendur hans úr Lærða skólanum fóru blysför að húsi hans á áttræðisafmæli skáldsins árið 1906. Farið verður frá Gröndalhúsi kl. 16.30. Þar mun Þórarinn Eldjárn segja nokkur orð um skáldið og Sigurður Skúlason leikari flytur ljóð eftir Gröndal. Gengið veður að leiði Gröndals í Hólavallakrikjugarði þar sem lesið verður stuttur minningartexti. Frá Hólavallakirkjugarði verður gengið yfir á Landsbókasafn þar sem handritasýningin „Myndaði ég stafi og marga dráttu…“–  Benedikt Gröndal – skrifarinn og skáldið opnar.

           

Bókakaffi með Pétri Gunnarsyni um Gröndal.

Bókakaffi Gerðubergs í október verður helgað Benedikt Gröndal og dagskrá um hann verður á fæðingarstað hans, Bessastöðum í mánuðinum.

Frítt verður inn á alla viðburði en þar sem plássið í stofum Gröndals er takmarkað þarf að bóka þátttöku á suma viðburðanna. Nánari upplýsingar um dagskrá mánaðarins og bókanir er að finna á vef Bókmenntaborgarinnar, bokmenntir.is.

Benedikt Gröndal

Benedikt Gröndal var stórhugi á sínum tíma og má nefna hann glæsilegan fulltrúa nítjándu aldarinnar. Hann var skáld, náttúrufræðingur, myndlistarmaður, þýðandi og kennari. Hann var einnig áhugamaður um mótun bæjarins og þróun Reykjavíkur sem höfuðstaðar Íslands. Auk ljóða og prósatexta liggja eftir hann greinar um lífið í bænum þar sem hann leggur til umbætur á höfuðstaðnum í anda þess sem tíðkast í erlendum stórborgum. Gröndal var sonur Sveinbjarnar Egilssonar og Helgu Gröndal og fæddist á Bessastöðum.



Minning Gröndals dofnaði um miðbik síðustu aldar en mikilvægi hans í íslenskri bókmennta- og menningarsögu hefur verið staðfest síðastliðin ár með útgáfu á verki hans Íslenskir fuglar og endurútgáfu á sjálfsævisögu hans, Dægradvöl, sem er ein rómaðasta sjálfsævisaga íslenskra bókmennta. Gröndal er einnig lifandi í skáldverkum samtímaskálda og má þar nefna skáldsögurnar Sæmd eftir Guðmund Andra Thorsson og Öræfi Ófeigs Sigurðssonar. Þá hefur Teitur Magnússon samið lag við ljóð hans „Nenni“ og fleiri tónlistamenn hafa sungið ljóð hans á allra síðustu árum.