Á morgun laugardaginn 7. maí verður haldinn almennur hreinsunardagur og hefur verið opnuð sérstök skráningarsíða þar sem hægt er að velja sér tiltektar svæði á opnum leiksvæðum og nágrenni. Kjörið er að taka saman höndum og velja sér svæði til að fegra.
Átakið Hreinsum saman – tökum þátt og tínum rusl hefur gengið afskaplega vel og hafa fjölmargir lagt verkefninu lið síðustu daga bæði einstaklingar og fyrirtæki. Átakið er liður í evrópskri hreinsunarviku sem Reykjavíkurborg tekur nú þátt í þar sem fólk og fyrirtæki eru hvött til að hreinsa saman.
Á morgun laugardaginn 7. maí verður haldinn almennur hreinsunardagur og hefur verið opnuð sérstök skráningarsíða þar sem hægt er að velja sér tiltektar svæði á opnum leiksvæðum og nágrenni. Kjörið er að taka saman höndum og velja sér svæði til að fegra. Öll opin leiksvæði hafa verið skráð inn á skráningarsíðuna og auðvelt að velja sér stað. Þeir sem vilja geta fengið ruslapoka á hverfastöðvum Reykjavíkurborgar á Njarðargötu, við Jafnasel og Stórhöfða á laugardeginum eða dagana á undan. Starfsfólk borgarinnar sækir pokana á opnu leiksvæðin eftir helgina.
Ungir eldhuga í umhverfismálum hljóta viðurkenningu
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók þátt í átakinu ásamt starfsfólki ráðhúss Reykjavíkur miðvikudaginn 4. maí sl. og hirti upp rusl í nágrenni við ráðhúsið og veiddi rusl upp úr Tjörninni. Hann notaði tilefnið og heiðraði nokkra unga eldhuga í umhverfismálum sem hafa meðal annars komið á fund til hans og staðið fyrir hreinsunarátaki á eigin vegum í nágrenni sínu. Hann afhenti þeim viðurkenningarskjal og skráningu á eitt sumarnámskeið í þakkarskyni.
Reykjavíkurborg hvetur alla sem eiga þess kost að hreinsa saman, taka þátt og tína rusl. Borgarstarfsmenn hafa stokkið í leiðangra í vikunni í leit að rusli og munu halda því áfram næstu daga. Allar upplýsingar um þetta starf er að finna á heimasíðunni reykjavik.is og fésbókarsíðunni