Stórsýningin Verk og vit var opnuð í Laugardalshöll í dag. Reykjavíkurborg er einn af bakhjörlum sýningarinnar og ávarpaði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri gesti við opnun sýningarinnar. Hann sagði að uppbygging íbúðarhúsnæðis hafi aldrei áður verið jafn mikil í sögu borgarinnar. Útgefin byggingarleyfi til uppbyggingar íbúða hafi sem dæmi aldrei verið jafn mörg og í fyrra.
Reykjavíkurborg er með bás á sýningunni þar sem dregin er fram stefnumörkun Aðalskipulags Reykjavíkur og sýnt hvernig hún birtist í nokkrum deiliskipulagsáætlunum í borginni. Einnig er sýndur verkferill skipulagsverkefna frá hugmynd að veruleika og sýnt hvar uppbyggingarverkefni eru í ferlinu.
Samþykkt skipulag fyrir 4.400 íbúðir
Þegar er hafin uppbygging á reitum þar sem heimilt er að byggja fleiri en 1.800 íbúðir víðsvegar um borgina. Meðal stórra reita í fullri uppbyggingu þessa dagana eru Einholt-Þverholt þar sem Búseti byggir 235 íbúðir, Lýsisreiturinn við Grandaveg þar sem 144 íbúðir rísa, annar áfangi Bryggjuhverfis þar sem yfir 140 íbúðir eru í byggingu, Höfðatorgi og Mánatúni. Í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási er allt komið á fullt aftur í nýbyggingum. Þá er verið að byggja íbúðarhúsnæði víða í miðborginni þó svo að uppbygging hótela sér þar áberandi.
Búið er að samþykkja deiliskipulag fyrir meira en 4.400 íbúðir í Reykjavík sem fara í byggingu á næstu misserum, m.a. í Vesturbugt og annar eins fjöldi íbúða er í deiliskipulagsferli. Mikil uppbygging íbúðarhúsnæðis verður því í borginni á næstu árum enda vinna borgaryfirvöld að því að hægt verði að koma til móts við mikla eftirspurn eftir húsnæði um leið og byggð verður þétt í borginni samkvæmt aðalskipulagi.
Aukin vitund um skipulagsmál og mannvirkjagerð
Sýningin Verk og vit er nú haldin í þriðja sinn. Um 90 sýnendur eru skráðir til leiks en sýningin er tileinkuð byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð. Sýningin er í Laugardalshöll og verður hún opin til sunnudags. Markmið sýningarinnar er að kynna vörur, þjónustu og tækninýjungar á þessu sviði en ekki síður að koma á viðskiptum fagaðila og auka vitund almennings um byggingarmál, skipulagsmál og mannvirkjagerð.
Framkvæmdaaðili sýningarinnar er AP almannatengsl en samstarfsaðilar eru atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, Landsbankinn og LNS Saga. Frekari upplýsingar um sýninguna má finna á heimasíðu Verk og vits Í frétt frá aðstandendum sýningarinnar segir að síðasta sýning hafi tekist mjög vel í alla staði og þá mættu um 18.000 gestir.
Reykjavíkurborg hvetur gesti sýningarinnar til að kynnar sér upplýsingar borgarinnar og merkja inn sinn uppáhaldsstað í borginni á stórt kort sem sett hefur verið upp.