Uppskeruhátíð úr verkefnahring í Háteigsskóla

Skóli og frístund Mannlíf

""
Unglingar í Háteigsskóla settu upp skemmtilega sýningu í dag þar sem þeir sýndu uppskeru af verkefnahring sem staðið hefur í 5 vikur. 
Nemendur í 8. 9. og 10. bekk Háteigsskóla hafa unnið að fjölbreyttum verkefnum þar sem áhugamál og forvitnin hafa ráðið för. Á sýningunni í skólanum mátti kynna sér allt milli himins og jarðar, förðun, fatahönnun, gríska goðafræði, hipp hopp menninguna, skaðsemi reykinga, taek won do -bardagalistina, hvernig megi komast út úr þægindarammanum og fjölmargt fleira. Alls voru á fimmta tug verkefna á sýningunni sem vitna um fróðleiksþorsta, breitt áhugasvið og skapandi hugsun nemenda. 
 
Þetta er 12. árið í röð að nemendur í Háteigsskóla vinna í verkefnahring á vormisserinu og sýnir reynslan mikla ánægju þeirra með það námsfyrirkomulag.