TINNA – velferð reykvískra barna

Velferð

""
Velferðarráðuneytið veitti í dag velferðarsviði borgarinnar styrk að upphæð tuttugu milljóna til verkefnisins TINNU, sem deilist á tvö ár. TINNA  er tilraunaverkefni til hagsbóta fyrir einstæða foreldra sem fá fjárhagsaðstoð og börn þeirra.
Verkefnið verður til í kjölfar rannsóknar sem velferðarsvið Reykavíkur lét gera á högum reykvískra foreldra og velferð barna.  Skoðuð var þátttaka barna í íþrótta- og tómstundastarfi en Þar kom fram að fjárhagsleg og félagsleg staða hefur áhrif á þátttöku þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi .


TINNA felst í því að veita einstæðum foreldrum fjölþætta þverfaglega þjónustu með velferð barna að leiðarljósi.


Næstu tvö ár, 2016 og 2017, verður í það minnsta  15-20 einstæðum foreldrum vísað í verkefnið á ári hverju. Ráðinn verður sérstakur starfsmaður verkefnisins, sem ber m.a. faglega ábyrgð á þjónustu við sérhvern notanda í úrræðinu. Verkefnið verður unnið frá þjónustumiðstöð Breiðholts.


Skipaður verði samstarfshópur verkefnisins sem fulltrúi frá velferðarráðuneyti á setu í, sem hittist a.m.k. tvisvar á ári til að fara yfir stöðu þess.
 
Ellý Alda Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu velferðarsviðs, og Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, skrifa undir styrkveitinguna.
 
Samningurinn í heild sinni 
Rannsókn á aðstæðum reykvískra foreldra