Þekkir þú Reykvíking ársins?

Stjórnsýsla Mannlíf

""
Borgarstjóri óskar nú eftir tilnefningum um Reykvíking ársins í sjötta sinn.
Það er komið að því að velja Reykvíking ársins en borgarbúar geta nú sent inn tilnefningu um hver á þennan ágæta titil skilinn á netfangið hugmynd@reykjavik.is  Frestur til að senda inn tilnefningar er til mánudagsins 13. júní nk.
 
Þetta er sjötta árið sem óskað er eftir tilnefningum en tilgangurinn er að leita að einstaklingi sem með háttsemi sinni eða atferli hefur verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. 
 
Til greina koma aðeins þeir sem hafa lagt borginni lið, t.d. með því að halda borgarlandinu hreinu með ólaunuðu framlagi sínu, sýnt af sér djörfung og dug eða gert Reykjavíkurborg og samfélaginu í borginni gott með einhverjum hætti.
 
Sú hefð hefur myndast á undanförnum árum að Reykvíkingur ársins rennir fyrstur fyrir lax í Elliðaánum ásamt borgarstjóra í boði Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem hefur árnar á leigu.
 

„Ég hvet fólk til að koma með tillögur að Reykvíkingi ársins,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. ,,Þau, sem hlotið þennan titil á undanförnum árum, eru sannarlega fyrirmyndarfólk og vel að nafnbótinni komin.“

Þriggja manna dómnefnd velur Reykvíking ársins úr innsendum tillögum.