Teenage Wasteland of the Arts - kvikmyndagerðarnámskeið
Skóli og frístund Menning og listir
Nýtt námskeið í kvikmyndagerð og vídjólist verður haldið í Hinu Húsinu dagana 10. mars - 26. maí 2016.
Um er að ræða 12 vikna námskeið í kvikmyndagerð fyrir fólk á aldrinum 16 - 25 ára á vegum Teenage Wasteland of the Arts listaskólans sem starfræktur er í Kaliforníu og Reykjavík.
Um er að ræða 12 vikna námskeið í kvikmyndagerð fyrir fólk á aldrinum 16 - 25 ára á vegum Teenage Wasteland of the Arts listaskólans sem starfræktur er í Kaliforníu og Reykjavík.
Teenage Wasteland of the Arts listaskólinn er einkarekinn og býður upp á nám í kvikmyndagerð og listsköpun fyrir unglinga á aldrinum 14 - 21. Markmið námskeiðanna er að bjóða upp á hvetjandi og heimspekilegt umhverfi fyrir ungt fólk til að tjá sköpun sína, áhugamál, drauma, ást, ótta, martraðir og reiði á jákvæðan og öruggan hátt. Á sama tíma, er nemendum kennt að búa til eigið verkasafn (portfolio) og aðstoðað við umsóknir í Lista- og kvikmyndaskóla.
Kennt verður á fimmtudögum frá klukkan 19.00 - 21.00 í Hinu Húsinu. Kynningarfundur um námskeiði fer fram í kvöld þann 1. mars kl 19:00 verður kynningarfundur og það er mikilvægt þeir sem ætla sér koma námskeiðið mæti á kynningarfundinn! ATH - Síðasti skráningardagur á námskeiðið er 2. mars!!
Námskeiðinu lýkur með sýningu á verkum nemenda á Bíó Paradís!! Hlökkum til að sjá ykkur!
Nánar um verkefnið á heimasíðu teenagewastelandofthearts.com