Vegleg sýning á náttúru Íslands verður sett upp í Perlunni í Öskjuhlíð en fyrirtækið Perla norðursins hefur lagt fram ítarlegar og vel útfærðar hugmyndir um slíka sýningu í húsinu.
Borgarráð hefur falið skrifstofu eigna og atvinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg að ganga til samninga við Perlu norðursins ehf um leigu á Perlunni en fyrirtækið hyggst setja upp veglega náttúrusýningu í húsinu. Auglýst var eftir áhugasömum aðilum um rekstur á náttúrusýningu í Perlunni og var tilboð Perlu norðursins það eina sem barst en skilafrestur rann út 22. febrúar sl.
Dómnefnd, sem skipuð var til að meta umsóknirnar, telur umsóknina uppfylla öll skilyrði sem sett voru fram. Dómnefndin tekur fram að í viðræðunum verði sérstaklega hugað að fræðsluhlutverki sýningarinnar og tengslum við skóla og sér í lagi heimsóknum frá skólum Reykjavíkurborgar. Einnig að skoðuð verði möguleg aðkoma borgarinnar í gegnum Menningarkortið (Reykjavik City Card) og að tryggt verði að staðið verði við metnaðarfull áform um náttúrusýningu sem byggir á nýjustu og bestu þekkingu á sviði náttúrufræða og styrk tengsl við fræðaheiminn.
Allt frá því að Reykjavíkurborg keypti Perluna af Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið unnið að því að finna húsinu verðugt hlutverk með það að leiðarljósi að Perlan verði áfram aðgengileg almenningi og hluti af Öskjuhlíðinni. M.a. var skrifað undir leigusamning við ríkið um að koma upp sýningu á náttúru Íslands í húsinu. Sá leigusamningur fékk hins vegar ekki formlega staðfestingu. Eftir að sýnt þótti að ríkið mundi ekki taka þátt í sýningu á náttúru Íslands í Perlunni var ákveðið að auglýsa húsið til leigu.
Perla norðursins ehf. var stofnað á árinu 2015. Markmið félagsins er að setja upp metnaðarfulla náttúrusýningu í Perlunni fyrir Íslendinga og ferðamenn. Áætlað er að stofnkostnaður sýningarinnar verði um 1.550 milljónir kr. án vsk. Hluthafar í Perlu norðursins ehf. eru Landsbréf/ITF1, Perluvinir ehf. og Saltland ehf & Lappland ehf.
Borgarráð fékk kynningu á verkefninu í morgun og samþykkti einróma að heimila skrifstofu eigna og atvinnuþróunar að ganga til samninga við fyrirtækið.