Styrkir til skóla- og frístundastarfs fyrir 22 milljónir króna

Skóli og frístund

""
Skóla- og frístundaráð hefur samþykkt styrkveitingar til fjölmargra verkefna sem stuðla að nýbreytni, fagmennsku og auknu samstarfi í skóla- og frístundastarfi.  
 
Alls barst 81 umsókn um styrk til þróunarstarfs og var úthlutað til 38 verkefna.

Tæplega fimm milljónum króna var úthlutað til þróunarverkefna í frístundastarfi, um 6 milljónum til grunnskólastarfs og tæplega þremur milljónum kr. til leikskólastarfs. Þá hlutu samstarfsverkefni þvert á skólastig og frístundastarf fimm og hálfa milljón króna í styrki.
 
Hæsti styrkurinn til frístundastarfs, eða 450.000 kr., kom í hlut verkefnisins Klárir krakkar í frístundaheimilinu Eldflauginni við Hlíðaskóla, en það miðar að því styðja við börn sem glíma við kvíða.  Samstarfsverkefni allra grunnskólanna í Breiðholti fékk hæsta styrkinn til framsækins grunnskólastarfs eða 1,5 milljón króna, en skólarnir ætla að vinna að því að veita nemendum á miðstigi tækifæri til að takast á við ögrandi verkefni í námi, vísindum og listum. 
 
Leikskólinn Laufskálar sem hefur sérhæft sig í leiklist fékk hæsta þróunarstyrkinn til leikskólastarfs eða 900.000 kr. til að þróa tjáningu og sviðslistir barna í skapandi starfi. 
 
Lestrarverkefnið Já, það er gott að lesa fékk hæsta samstarfsstyrkinn þvert á skólastig eða 2,4 milljónir króna en að verkefninu standa leikskólar, grunnskólar og frístundaheimili í Grafarholti og Úlfarsárdal svo og þjónustumiðstöð hverfisins.  
 
Við úthlutun þróunarstyrkja var lítið til sex áhersluþátta

• Málþroska, læsis og lesskilnings

• Verk-, tækni- og listnáms

• Lýðræðis, jafnréttis, mannréttinda

• Náttúru, vísinda og sjálfbærni

• Fjölmenningar

• Gæði og fagmennsku
 
Alls bárust 34 umsóknir um almenna styrki en úthlutað var þremur milljónum króna til tólf verkefna. Hæsta almenna styrkinn eða kr. 500.000 hlaut Ingibjörg E. Jónsdóttir vegna verkefnisins Nýtum tæknina og blómstrum saman og er ætlað er að styðja við upplýsingatækni í leikskólum. Tvö verkefni fengu styrk að upphæð kr. 300.000, samtökin Móðurmál sem sinnir móðurmálskennslu tví- og margtyngdra barna og Pörupiltar sem veita nememendum í 10. bekk kynfræðslu.