Styrkirnir eru ætlaðir til niðurgreiðslu á kostnaði vegna kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Þeir eru vegna útgáfu bóka og annars efnis sem kemur út á árinu 2016 eða í ársbyrjun 2017.
Styrkirnir eru aðgerð í kjölfar menningarstefnu Reykjavíkurborgar sem miðar m.a. að því að hlúa að varðveislu menningararfleifðar og hvetja til miðlunar hennar í fjölbreyttu formi. Þriggja manna dómnefnd skipuð tveimur starfsmönnum Borgarsögusafns Reykjavíkur og skrifstofustjóra menningarmála metur umsóknir.
Í umsókn komi fram nauðsynlegar upplýsingar um umsækjanda ásamt lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu og verðáætlun Ljósmyndasafns Reykjavíkur vegna afgreiðslu ljósmynda í höfundarétti sem bera birtingagjald skv. gjaldskrá safnsins.
Umsókn merkt ,,Myndrík bók um sögu Reykjavíkur“ berist á netfangið menning@reykjavik.is.
Umsóknir berist í síðasta lagi í dagslok mánudaginn 2. maí.