Styrkir fyrir myndríka útgáfu um sögu Reykjavíkur

Menning og listir

""
Styrkirnir eru ætlaðir til  niðurgreiðslu á kostnaði vegna kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.  Þeir eru vegna útgáfu bóka og annars efnis sem kemur út á árinu  2016 eða í ársbyrjun 2017. 
Styrkirnir eru aðgerð í kjölfar menningarstefnu Reykjavíkurborgar sem miðar m.a. að því að hlúa að varðveislu menningararfleifðar og hvetja til miðlunar hennar í fjölbreyttu formi. Þriggja manna dómnefnd skipuð tveimur starfsmönnum Borgarsögusafns Reykjavíkur og skrifstofustjóra menningarmála metur umsóknir.


Í umsókn komi fram nauðsynlegar upplýsingar um umsækjanda ásamt  lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu og verðáætlun Ljósmyndasafns Reykjavíkur vegna afgreiðslu ljósmynda í höfundarétti sem bera birtingagjald  skv. gjaldskrá safnsins.


Umsókn merkt ,,Myndrík bók um sögu Reykjavíkur“ berist á netfangið menning@reykjavik.is.
 
Umsóknir berist í síðasta lagi í dagslok mánudaginn 2. maí.