Fréttabréf SFS haustið 2016 er komið út en það er sent út til skólasamfélagsins alls; foreldra og starfsfólks.
Í fréttabréfinu er farið um víðan völl í borginni og m.a. fjallað um nýjar leiðir í frístundastarfi með börnum í Klettaskóla, um forvarnarverkefni gegn einelti í Laugarnesi, um samstarf grunnskólanna í Grafarvogi um nýtt námsmat, um útvarp Vesturbæjarskóla og um móttöku barna sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi.
Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs fylgir fréttabréfinu úr hlaði með formálsorðum.