Stútfullt fréttabréf um skóla- og frístundastarf

Skóli og frístund

""

Fréttabréf SFS haustið 2016 er komið út en það er sent út til skólasamfélagsins alls; foreldra og starfsfólks. 

Í fréttabréfinu er farið um víðan völl í borginni og m.a. fjallað um nýjar leiðir í frístundastarfi með börnum í Klettaskóla, um forvarnarverkefni gegn einelti í Laugarnesi, um samstarf grunnskólanna í Grafarvogi um nýtt námsmat, um útvarp Vesturbæjarskóla og um móttöku barna sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi.  

Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs fylgir fréttabréfinu úr hlaði með formálsorðum. 

Sjá fréttabréf SFS haustið 2016. 

Skóla- og frístundasvið er líka á FB